Reykjanesbær er kraftmikið og fjölmenningarlegt samfélag á Suðurnesjum, nátengt starfsemi millilandaflugsins. Bærinn hefur vaxið hratt og leggur mikla áherslu á fjölbreytta þjónustu, íþróttir og menningu. Í sveitarstjórnarmálum eru atvinnuuppbygging og skólamál í forgrunni. Fyrir ungt fólk í Reykjanesbæ er mikilvægt að ræða tækifæri í tækni og þjónustu, auk þess sem umhverfismál og félagslegur stuðningur eru ofarlega á baugi í skuggakosningum framhaldsskólanema.
Íbúafjöldi: 22.697 manns
Á kjörskrá: 893 nemendur
Kjörstaðir skuggakosninga:
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Framsóknarflokkurinn
Listabókstafur: X-B
Oddviti: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
Staða: Í meirihluta
Fjöldi bæjarfulltrúa: 3
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Byggja undir framtíð Reykjanesbæjar og byggja upp enn betri bæ. Efla markvissa vinnu með ungmennaráði til að mæta þörfum ungmenna
-
Efla íþrótta- og tómstundastarf og stuðla að markvissri stefnumótun og uppbyggingu aðstöðu í samstarfi við íþróttafélögin. Koma á starfssamningum milli fyrirtækja og Reykjanesbæjar til þess að auka atvinnutækifæri ungmenna á svæðinu. Við viljum auk þess styðja vel við Fjölbrautarskóla Suðurnesja varðandi stækkun og fjölgun námsleiða.
-
Við teljum mikilvægt að efla þátttöku og vitundarvakningu ungs fólks þegar kemur að lýðræði. Kosningaréttur felur í sér mikla ábyrgð og við teljum eðlilegt að hann haldist við 18 ár, í samræmi við önnur réttindi og skyldur í samfélaginu. Í stað þess að lækka kosningaaldur viljum við leggja aukna áherslu á að styrkja rödd ungs fólks með öðrum leiðum, til dæmis í gegnum ungmennaráð, skólastarf og aukna fræðslu um lýðræði.
-
Í fyrsta lagi við viljum efla íþrótta- og tómstundastarf með markvissri stefnumótun og uppbyggingu aðstöðu í samstarfi við íþróttafélögin. Í öðru lagi viljum við áframhaldandi hækkun á frístundstyrk og öflugt ungmennastarf, því það er lykilatriði í forvörnum og vellíðan barna. Í þriðja lagi viljum við auka aðgengi að góðu tómstundastarfi, það gerum við með því að fá félagsmiðstöðvar í alla grunnskóla og styrkja 88 húsið fyrir ungmenni.
Svo má auðvitað nefna að við viljum sjá frístundarútuna í boði fyrir allan aldur í grunnskóla.
-
Fjölbrautarskóli Suðurnesja er einn af hornsteinum Suðurnesja. Viðreisn í Reykjanesbæ mun ávallt standa vörð um skólann og styðja uppbygginu og framtíðarsýn hans. Það gerum við með því að bjóða upp á fjölbreyttar og metnaðarfullar námsleiðir, ráðast í nauðsynlega stækkun skólans og þróa námið í takt við þarfir framtíðarinnar.
Markmiðið er að skólinn verði öflugur vettvangur fyrir menntun, nýsköpun og tækifæri fyrir ungt fólk á svæðinu – þar sem hæfileikar þeirra fá að blómstra
-
Áherslur okkar í umhverfismálum byggja á því að samfélagið sé grænt, vel gróið og vistvænt. Við viljum að flokkun, endurnýting og ábyrg nýting auðlinda séu sjálfsagður hluti hjá bæði heimilum og fyrirtækjum. Við leggjum áherslu á að skapa hreint og heilbrigt umhverfi þar sem íbúar njóta náttúrunnar og lífsgæða. Um leið viljum við tryggja að framtíð ungs fólks sé græn og full af tækifærum.
Á Reykjanesi felast einstök tækifæri sem tengjast sjálfbærri orku og nýtingu landsvæða. Við viljum nýta þau af ábyrgð, styðja við nýsköpun og skapa störf sem byggja á sjálfbærni, þekkingu og virðingu fyrir umhverfinu.
-
Við lítum á Reykjanesbæ sem fjölbreytt samfélag og það er styrkur okkar. Við teljum mikilvægt að sveitarfélagið taki virkan þátt í að skapa aðstæður þar sem allir íbúar fá að njóta sín, óháð bakgrunni, kynhneigð eða öðrum þáttum sem gera okkur ólík.
Þegar kemur að inngildingu segjum við að mestu máli skipti að ná til allra. Opið samfélag er alltaf betra og markmið okkar er að byggja upp samfélag þar sem fjölbreytileiki er sýnilegur og hann metinn mikils. Gleymum ekki að inngilding gerist ekki bara með stefnumótun, heldur einnig í daglegu lífi, samskiptum og í því að skapa tækifæri fyrir fólk til að skiptast á skoðunum og skilja hvert annað.
Að auki viljum við sjá Reykjanesbæ meðal annars
Bjóða upp á fjölbreytta viðburði sem höfða til ólíkra hópa
Tryggja að upplýsingar séu ávallt aðgengilegar á mörgum tungumálum
Skapa vettvang fyrir samtal, þátttöku og samveru
Reykjanesbær hefur auk þess staðið sig vel þegar kemur að inngildingu, sem dæmi má nefna viðburði eins og
„Menningarheimar mætast“ þar sem íbúar kynna mat, tónlist og hefðir sínar
„Gangbrautin við ráðhúsið“ er máluð í regnbogalitum sem tákn um sýnileika og stuðning við hinsegin samfélagið
-
Við viljum fylgja honum í einu og öllu, því að við trúum því að öll hafi jöfn tækifæri
-
Stefna okkar í geðheilbrigðismálum leggur áherslu á að tryggja öllum jafnt aðgengi að þjónustu, grípa fyrr inn með öflugum forvörnum og samþætta þjónustu kerfanna til að stytta bið og bæta úrræði.
-
Í fyrsta lagi viljum við þróa bæinn með þarfir íbúa í forgrunni með góðum samgöngum, tengingum og fjölbreyttum lifandi hverfum. Sem hluti af því ætlum við að bæta tengingar við ásbrú með göngu- og hjólastígum.
Í öðru lagi viljum við leggja áherslu á að vernda græn svæði og aukna útivistarmöguleika samhliða uppbyggingu.
Í þriðja lagi leggjum við einnig mikla áherslu á samráð við íbúa þegar kemur að umhverfisskipulagi, íbúar eru hagsmunaaðilar og rödd þeirra þarf að heyrast þegar ákvarðanir eru teknar um nærumhverfi þeirra.
Sjálfstæðisflokkurinn
Listabókstafur: X-D
Oddviti: Vilhjálmur Árnason
Staða: Í minnihluta
Fjöldi bæjarfulltrúa: 3
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
Miðflokkurinn
Listabókstafur: X-M
Oddviti: Gunnlaugur Kárason
Staða: Utan bæjarstjórnar
Fjöldi bæjarfulltrúa: 0
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
Samfylkingin
Listabókstafur: X-S
Oddviti: Guðný Birna Guðmundsdóttir
Staða: Í meirihluta
Fjöldi bæjarfulltrúa: 3
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description