Ísafjarðarbær er höfuðstaður Vestfjarða og samanstendur af nokkrum ólíkum byggðakjörnum. Sjávarútvegur er undirstaðan, en menntun, menning og ferðaþjónusta vega sífellt þyngra. Samgöngur, sérstaklega jarðgöng og vetrarþjónusta, eru ævinlega stór mál í sveitarstjórnarmálum. Fyrir framhaldsskólanemendur í bænum skiptir skapandi iðnaður og útivist miklu máli. Skuggakosningar gefa þeim tækifæri til að ræða hvernig hægt er að styrkja búsetu á Vestfjörðum og bæta tækifæri ungs fólks á svæðinu.

Íbúafjöldi: 3.987 manns

Á kjörskrá: 190 nemendur

Kjörstaðir skuggakosninga:

Menntaskólinn á Ísafirði

M - Miðflokkurinn
S - Samfylkingin
B - Framsókn og óháðir
C - Viðreisn
D - Sjálfstæðisflokkurinn

Framsókn og Óháðir

Listabókstafur: X-B

Oddviti: Kristján Þór Kristjánsson

Staða: Í minnihluta

Fjöldi bæjarfulltrúa: 2

  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description

Viðreisn

Listabókstafur: X-C

Oddviti: Gylfi Ólafsson

Staða: Nýtt framboð

Fjöldi bæjarfulltrúa: N/A

  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description

Sjálfstæðisflokkurinn

Listabókstafur: X-D

Oddviti: Jónas Þór Birgisson

Staða: Í minnihluta

Fjöldi bæjarfulltrúa: 2

  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description

Miðflokkurinn

Listabókstafur: X-M

Oddviti: Sævar Óli Hjörvarsson

Staða: Nýtt framboð

Fjöldi bæjarfulltrúa: N/A

  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description

Samfylkingin

Listabókstafur: X-S

Oddviti: Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir

Staða: Nýtt framboð

Fjöldi bæjarfulltrúa: N/A

  • Kosningarnar munu snúast um samfélagið, hvað stjórnmálaflokkarnir telji sig geta gert til að bæta líf íbúa í stækkandi bæjarfélagi. Hingað eru að koma nemar víðsvegar að, fjölskyldufólk hefur áhuga á því að setjast hér að sem þýðir fleiri á vinnumarkað og það er nauðsynlegt að mæta þeirra kröfum ef við viljum ekki að þeir flytji frá bæjarfélaginu vegna takmarkanna og húsnæðisframboðs. Þær einnig um snúast að uppbyggingu og framtíðarsýn sem og styrkja og efla þá grunnþjónustu sem bærinn veitir nú þegar en má standa sig betur að velli. 

  • Við viljum efla leigumarkað til að gera ungu fólki kleift að búa enn í bænum að námi loknu. Stuðla að því að á svæðinu verði möguleikar að ýmis konar framhalds- og háskólanámi fjölbreyttari og aðgengi að íþróttastarfi, og að auka tækifæri til félagsstarfs í bæjarfélaginu. 

  • Okkur finnst lækkun kosningaaldurs rökrétt. Það þarf að auka lýðræðislega þátttöku ungs fólk og bregðast við því að ungt fólk sé að fjarlægjast stjórnmál. Það er einnig liður í að tryggja að þátttaka dreifist betur milli aldurshópa í samfélaginu. Þegar ungmenni eru komin á menntaskólaaldur eru þau farin að móta skoðanir á framtíð sinni og samfélaginu. Það er því eðlilegt að þau hafi áhrif á ákvarðanir sem snerta þeirra eigin líf og framtíð. 

  • Í sveitarfélaginu er rekið öflugt íþróttastarf og við fögnum því. Margt má gera til að bæta aðstöðu félaganna og viljum við leggja okkur fram í því í góðu samtali við félög og iðkendur. Tónlistar- og menningarstarf er stór hluti af samfélaginu okkar og bærinn getur komið sterkur að því að auka vægi og tækifæri þar. 

  • Nú þegar eru áform um stækkun húsnæðis fyrir verknámsgreinar, og er mikilvægt að bæjarfélagið standi vel við bakið á Menntaskólanum á Ísafirði hvað varðar hugmyndir  um aukið nám á svæðinu. Aukin aðsókn í skólann er fagnaðarefni og okkur finnst sjálfsagt að bæjarstjórn og stjórnsýslan sé lipur stuðningsmaður og komi á móts við skólann og nemendur í þeirra áherslumálum hverju sinni.

  • Hreint og vel viðhaldið umhverfi skiptir miklu fyrir líðan íbúa. Við viljum tryggja að svæði bæjarins séu ekki aðeins hreinsuð heldur haldist hrein til lengri tíma, og að sorp safnist ekki upp á opnum svæðum. Það kallar á reglulegt viðhald, skýra ábyrgð og gott aðgengi að sorplausnum. Við leggjum einnig áherslu á að vernda fjöruna við Neðstakaupstað, bæta aðgengi og skapa þar aðstöðu sem nýtist fjölskyldum og samfélaginu í heild. Við viljum styrkja almenningssamgöngur og þannig stuðla að minni mengun. 

  • Það er mikilvægt að íbúar finni að þeir eigi sér öruggt umhverfi hér í sveitafélaginu. Þar viljum við vinna með skólum, íþrótta- og æskulýðsstarfi og menningarlífi til að efla virðingu, opna umræðuna og tryggja að allir finni að þeir eigi heima hér í bæjarfélaginu. 

  • Samfylkingin vill tryggja að hann verði innleiddur í framkvæmd. Markmiðið er að efla réttindi fatlaðs fólks, bæta aðgengi og tryggja að allir geti tekið fullan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. 

  • Í geðheilbrigðismálum leggur Samfylkingin áherslu á aukið aðgengi að þjónustu og öflugar forvarnir. Þó að ábyrgðin sé að stórum hluta hjá ríkinu geta sveitarfélög eins og Ísafjarðarbær gegnt lykilhlutverki með því að styðja við úrræði á borð við Vesturafl og Fjölsmiðjuna, efla félagslegt umhverfi og vinna markvisst að forvörnum fyrir alla aldurshópa. Með samstilltu átaki er hægt að bæta líðan og auka lífsgæði íbúa. 

  • Samfylkingin í Ísafjarðarbæ leggur áherslu á að efla almenningssamgöngur og bæta tengingar milli byggðakjarna. Í sveitarfélagi eins og Ísafjarðarbæ er sérstaklega mikilvægt að tryggja að ungmenni geti sótt nám og tómstundir án vandkvæða. Aðgengi að samgöngum er réttindamál sem stuðlar að jöfnum tækifærum og sterkari samfélagi. 

Previous
Previous

Hafnarfjarðarbær

Next
Next

Reykjanesbær