Skagafjörður er sterkt landbúnaðar- og matvælavinnsluhérað með öfluga útgerð á Sauðárkróki. Héraðið er þekkt fyrir hestamennsku og ríka sögu. Sveitarstjórn leggur áherslu á atvinnuþróun og þjónustu við dreifðari byggðir. Ungt fólk í Skagafirði er oft mjög tengt hefðum svæðisins en horfir líka til nýsköpunar. Í skuggakosningum eru málefni á borð við íþróttaaðstöðu, skóla og tækifæri fyrir ungt fólk til að snúa aftur að loknu námi mikilvæg umræðuefni.

Íbúafjöldi: 4.361 manns

Á kjörskrá: 194 nemendur

Kjörstaðir skuggakosninga:

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra

M - Miðflokkurinn
L - Byggðalistinn
B - Framsókn
D - Sjálfstæðisflokkurinn

FramsóknARFLOKKURINN

Listabókstafur: X-B

Oddviti: Einar Eðvald Einarsson

Staða: Í minnihluta

Fjöldi bæjarfulltrúa: 3

  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description

Sjálfstæðisflokkurinn

Listabókstafur: X-D

Oddviti: Magnús Barðdal

Staða: Í meirihluta

Fjöldi bæjarfulltrúa: 2

  • Við ætlum að gera Skagafjörð skemmtilegri. Það er gott að búa í Skagafirði en við getum gert enn betur varðandi viðburði og aðstöðu til mannamóta. Við viljum búa til samfélag þar sem unga fólkið vill búa og flytja til baka að námi loknu. Þá þarf að vera fjölbreytt framboð af tómstundum, öflugt menningarlíf, bæjarhátíðir, kaffihús, verslanir og góð þjónusta. Ekki má gleyma öflugu íþróttastarfi fyrir alla. Það er þannig samfélag sem fólk vill búa í og við teljum að kosningarnar muni snúast um það hver hefur raunhæfa sýn á það hvernig það er gert.

  • Við sjáum mikil tækifæri í komu Háskóla Íslands í Skagafjörð. Við viljum byggja upp öflugt skólasamfélag sem iðar af lífi. Einmitt það gerist þegar skólastarf eykst og við fáum fjöldann allan af nemendum í okkar góða samfélag. Þá viljum við styðja við viðburði þar sem framhaldsskólanema, háskólanemar og íbúar koma saman í leik og starfi.

  • Við sjáum mikil tækifæri í því að samræma aldur varðandi bílpróf, kosningar, áfengiskaupaaldur o.fl. Þegar fólk verður fullorðið þá á það bara að geta gert þetta allt saman.

  • Eitt af okkar stærstu málum er að hefja undirbúning á bættri íþróttaraðstöðu á Sauðárkróki með stækkun á íþróttaraðstöðu á Sauðárkróki. Við viljum greina þarfir mismunandi hópa hvernig slíkt mannvirki getur þjónað sem flestum. Einnig viljum við byggja upphitunaraðstöðu við reiðhöllina á Sauðárkróki til að bæta aðstöðu hestamanna. VIð viljum bjóða íbúum Skagafjarðar uppá Lýðheilsukort að fyrirmynd Akureyrar, þar sem fjölskyldur greiða eitt gjald sem veitir þeim aðgang að sundi, skíðum, söfnum og mögulega fleiru eins og golfi. Þá viljum við auka opnunartíma í sundlaugum Skagafjarðar og leitast við að lækka kostnað barna við íþróttaiðkun.

  • Það er forgangsmál að pressa á ríkið að hefja uppbyggingu á stækkun verknámshúss við FNV. Aðstaðan þar  er ekki boðleg og hana þarf að bæta. Jafnframt sjáum við mikil tækifræi í að tengja betur saman FNV við Háskólann og jafnframt tengja þau betur við atvinnulífið. Við viljum að hér rýsi þekkingargarðar þar sem menntasamfélagið vinnur saman með atvinnulífinu og skapar þannig ný og spennandi störf.

  • Við viljum að Skagafjörður verði fyrirmyndar sveitarfélag í umhverfismálum og að sveitarfélagið leiði með góðu fordæmi í rekstri, innkaupum og skipulagi, með áherslu á sjálfbærni og ábyrgð.

    Við viljum sjá fleiri hleðslustöðvar um allan Skagafjörð svo rafbílavæðing verði raunhæfur kostur fyrir alla.

    Við viljum auka áherslu á hjólreiðar með betri stígum og aðstöðu, bæði fyrir daglegar ferðir og útivist.

    Jafnframt viljum við viðhalda og fylgja eftir loftslagsstefnu sveitarfélagsins með mælanlegum aðgerðum og reglulegu eftirfylgni.

  • Afstaða okkar er skýr þegar kemur að inngildingu. Við viljum að Skagafjörður sé samfélag þar sem allir eru velkomnir óháð uppruna og þar sem hver og einn fær tækifæri til að taka virkan þátt. Við þurfum á öllum að halda og það er lykilatriði að virkja nýja íbúa sem mikilvægan hluta af okkar góða samfélagi.

    Við leggjum áherslu á að efla íslenskukennslu í samstarfi við Farskólann þannig að fleiri geti tekið virkan þátt í samfélaginu og atvinnulífinu. Jafnframt viljum við tryggja að efni frá sveitarfélaginu sé aðgengilegt á fleiri tungumálum svo upplýsingar nái til allra íbúa.

    Við viljum einnig eiga virkt samtal við íþróttafélög og önnur áhugamannafélög um markvisst átak til að auka þátttöku erlendra ríkisborgara. Með því styrkjum við tengsl milli fólks, aukum samheldni og gerum samfélagið okkar enn öflugra og fjölbreyttara.

  • Við munum vinna markvisst að því að aðlaga þjónustu sveitarfélagsins að kröfum samningsins þannig að hún sé aðgengileg, sveigjanleg og miðuð að þörfum hvers og eins. Sérstök áhersla verður lögð á að bæta aðgengi að opinberum byggingum og upplýsingum, styrkja stoðþjónustu og tryggja að fatlað fólk hafi raunveruleg tækifæri til þátttöku í samfélaginu, hvort sem er í námi, starfi, íþróttum eða félagslífi.

    Við viljum jafnframt eiga virkt samtal við fatlað fólk og hagsmunasamtök þeirra þannig að ákvarðanir séu teknar í samráði við þá sem málið varðar. Markmiðið er að Skagafjörður verði samfélag þar sem allir hafa jafna möguleika til að lifa sjálfstæðu og virku lífi.

  • Við viljum efla geðheilbrigði í samfélaginu með því að setja aukna áherslu á fræðslu og opna umræðu. Mikilvægt er að draga úr fordómum og auka skilning á geðheilsu þannig að fleiri treysti sér til að leita sér aðstoðar þegar þörf er á.

    Við ætlum að tryggja að íbúar viti hvert hægt er að leita eftir hjálp við geðheilbrigðistengdar áskoranir með skýrum upplýsingum og betra aðgengi að þjónustu. Með því viljum við stuðla að því að enginn standi einn og að allir hafi raunverulegan möguleika á að fá stuðning þegar á þarf að halda.

  • Staða samgangna í Skagafirði er víða óviðunandi og við ætlum að setja mun meiri þunga í að knýja fram úrbætur. Samgöngur eru lífæð samfélagsins og forsenda þess að daglegt líf, atvinnulíf og þjónusta gangi upp.

    Við viljum setja aukna pressu á ríkið og Vegagerðin um að auka fjármagn verulega til svæðisins þannig að hægt sé að fara í nauðsynlegar framkvæmdir. Sérstök áhersla verður á öryggi barna sem þurfa daglega að ferðast um vegi sem eru ekki í viðunandi ástandi.

    Jafnframt viljum við endurskoða fyrirkomulag snjómoksturs um allan fjörðinn með það að markmiði að bæta þjónustu, auka öryggi og tryggja að fólk komist leiðar sinnar, bæði til vinnu og skóla.

Byggðalistinn

Listabókstafur: X-L

Oddviti: Eyþór Fannar Sveinsson

Staða: Í meirihluta

Fjöldi bæjarfulltrúa: 2

  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description

Miðflokkurinn

Listabókstafur: X-M

Oddviti: Högni Elfar Gylfason

Staða: Nýtt framboð

Fjöldi bæjarfulltrúa: N/A

  • Við leggjum mikla áherslu á að auka framboð af húsnæði og einfalda skipulagsferli. Það er sérstakur skortur á húsnæði fyrir fyrstu kaupendur í öllum þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins, og þá sérstaklega á Sauðárkróki. Með því að einfalda skipulagsferli, halda lóða- og leyfiskostnaði í lágmarki og hraða skipulagsferli munum við auðvelda uppbyggingu og þannig leggja grunninn að hraðari uppbyggingu þéttbýliskjarna okkar.

    Leikskólaplássum er áfátt og því ætlum við að breyta. Við vitum að leiksólamál eru flókið vandamál sem snertir alla anga samfélagsins, og við því þarf fjölbreyttar lausnir. Við viljum brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólapláss með hærri heimgreiðslum, auka starfsánægnu meðal starfsmanna leikskólanna og fjölga fagmenntuðu starfsfóllki.

    Fyrst og frest munu kosningarnar snúast um traust milli íbúa Skagafjarðar og kjörinna fulltrúa. Fólk er orðið þreytt á því að fá endalaus loforð sem verða aldrei að veruleika. Við í Miðflokknum í Skagafirði viljum endurvekja þetta traust með því að halda á lofti virku samtali við íbúa Skagafjarðar þegar kemur að opinberum framkvæmdum og þjónustu sem veitt er. Þetta er burðarstólpi allrar starfsemis sveitarfélagsins og snertir því alla anga þess.

  • Við ætlum að skapa aðstæður þar sem ungt fólk sér hag í að búa og starfa í Skagafirði. Það gerum við með auknu framboði af húsnæði og einfaldara skipulagsferli, sterkari innviðum og þjónustu, stuðningi við atvinnuuppbyggingu og fjölbreyttu framboð starfa og öflugu skóla- og íþróttastarfi. Markmiðið er að gera sveitarfélagið að framúrskarandi valkosti til framtíðar.

  • Við teljum mikilvægt að efla þátttöku ungs fólks í lýðræðislegu stjórnkerfi landsins. Áhersla okkar á aukið íbúalýðræði og að ungt fólk fái raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif. Við viljum virka ungmennaráð sveitarfélagsins og veita þeim tækifæri til að taka virkari þátt í stefnumótun sveitarfélagins. Ungmennaráðið skal haft með í ráðum við ákvarðanatöku sem mun hafa áhrif, þá sérstaklega varðandi félagsmál, skóla- og íþróttastarf o.s.frv. Um lækkun kosningaaldurs þarf að ræða af ábyrgð og með víðtæku samráði, enda snýr það að grundvallarbreytingu á lýðræðiskerfinu.

  • Við viljum tryggja öllum börnum og ungmennum jafnt aðgengi að íþrótta- og tómstundastarfi. Það felur í sér bætta íþróttaaðstöðu þar sem hennar er þörf, aukinn stuðning við íþróttafélög og bætt aðgengi óháð búsetu. Við lítum á íþrótti sem mikilvægan þátt í heilbrigðu samfélagi og eina af grunnstöðum menningarinnar í sveitarfélaginu okkar.

  • Við viljum styrkja framhaldsskólastigið með því að bæta aðstöðu, t.d. með stækkun verknámshúss FNV. Styðja þarf við uppbyggingu og þróun námsbrauta, til þess að auka framboð fyrir fjölbreyttan hóp nemenda. Við leggjum mikla áherslu á samstarf milli skóla og atvinnulífs, það auðveldar nemendum að komast úr skólunum og út í atvinnulífið. Sterkir skólar eru lykilatriði fyrir framtíð sveitarfélagsins.

  • Við leggjum áherslu á raunhæfar og skynsamlegar lausnir í umhverfismálum. Bæta þarf og viðhalda innviðum, s.s. veitukerfum og sorphirðu. Stuðla þarf að betri nýtingu auðlinda, t.d. jarðhita og vatnsafli. Sanngjart og gagnsæt fyrirkomulag í þjónustu t.d. soprhirðu, eru grundvallaratriði þegar kemur að verndum náttúrunnar okkar. Umhverfismál eiga að byggja á ábyrgð og hagkvæmni.

  • Við viljum að allir íbúar hafi jafnt aðgengi að þjónustu og geti tekið virkan þátt í samfélaginu. Það felur í sér bætta þjónustu og upplýsingagjöf fyrir fólk af erlendum uppruna og jafnræði í þjónustu óháð bakgrunni. Samfélagið okkar á að byggja á virðingu og þátttöku allra. Góð þjónusta byggir á aðgengi, samráði og mannlegri sýn.

  • Við viljum tryggja að þjónusta við fatlað fólk sé til staðar og virki í framkvæmd, fyrir alla þá íbúa sem þurfa á þeirri þjónustu að halda. Það felur í sér betri samhæfingu í þjónustu og einstaklingsmiðaðar lausni fyrir fólk með flóknar þarfir. Áhersla okkar er á að fólk fái þá þjónustu sem það þarf, þegar það þarf á henni að halda.

  • Við leggjum áherslu á öfluga velferðarþjónustu sem nær til allra. Það felur í sér bætt aðgengi að stuðningi innan skóla og ða félagsþjónustu, snemmtæka íhlutun og samvinnu milli kerfa, þannig engin þurfi að upplifa sig ráðalausan. Geðheilsa er lykilþáttur í velferð samfélagsins.

  • Við viljum bæta samgöngur, sérstaklega í öryggisskyni. Þar er áherslan fyrst og fremst á viðhald og uppbyggingu vega, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Betri tengingar innan sveitarfélagsins og við nágrannasveitarfélög okkar og stuðning við stór innviðakerfi t.d. í formi jargangna og vegaúrbótum. Góðar samgöngu eru forsenda sterks atvinnulífs og blómlegrar búsetu.

Previous
Previous

Reykjanesbær

Next
Next

Þingeyjarsveit