Garðabær er ört vaxandi bæjarfélag á höfuðborgarsvæðinu sem einkennist af hágæða íbúðabyggð og góðri þjónustu. Atvinnulíf er fjölbreytt með áherslu á tækni og verslun. Sveitarstjórn leggur mikla áherslu á skólamál, skipulagsmál og íþróttastarf. Ungt fólk í Garðabæ býr í samfélagi þar sem stutt er í náttúru og útivist. Í skuggakosningum eru umhverfismál, skipulag nýrra hverfa og tómstundaframboð meðal helstu umræðuefna ungra kjósenda í bænum.
Íbúafjöldi: 20.724 manns
Á kjörskrá: 723 nemendur
Kjörstaðir skuggakosninga:
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Framsóknarflokkurinn
Listabókstafur: X-B
Oddviti: Hlynur Bæringsson
Staða: Í minnihluta
Fjöldi bæjarfulltrúa: 1
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
Viðreisn
Listabókstafur: X-C
Oddviti: Guðlaugur Kristmundsson
Staða: Í minnihluta
Fjöldi bæjarfulltrúa: 1
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
Sjálfstæðisflokkurinn
Listabókstafur: X-D
Oddviti: Almar Guðmundsson
Staða: Í hreinum meirihluta
Fjöldi bæjarfulltrúa: 7
-
Kosningarnar snúast um það hvort íbúar vilja halda áfram á þeirri braut sem Garðabær hefur verið á undanfarin ár. Þær snúast um gæði þjónustunnar, ábyrga uppbyggingu og hvernig tekist hefur að mæta þörfum ört vaxandi samfélags. Sjálfstæðisflokkurinn telur að vel hafi tekist til og vill byggja áfram á þeim árangri. Kannanir sýna skýrt að íbúar eru ánægðir með þjónustuna og það er sá árangur sem við viljum verja og efla til framtíðar.
-
Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ hefur í gegnum tíðina lagt áherslu á öflugt íþrótta- og tómstundastarf fyrir ungt fólk ásamt markvissri uppbygging íþróttamannvirkja. Það ætlum við að halda áfram t.d. með frekari uppbyggingu íþróttamannvirkja í Vetrarmýrinni. Einnig höfum við nýlega tekið í notkun Ungmennahús en þar er að finna vettvang fyrir ungt fólk að koma saman og mynda vinatengsl. Ekki má heldur gleyma sundlaugunum okkar en þar horfum við til þess að lengja opnunartímann um helgar á sama hátt og við höfum gert á virkum dögum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt ríka áherslu á fjölbreytta húsnæðisuppbyggingu þar sem bæði sérbýli og fjölbýli fara saman og mynda heildstæða byggð. Við höfum jafnframt lagt áherslu á að mæta þörfum ungs fólks og fyrstu kaupenda en dæmi um það má sjá í Eskiásnum.
-
Stefna Sjálfstæðisflokksins í þessum efnum er skýr en landsfundur flokksins ályktaði árið 2015 að eðlilegast væri að kosningarétturinn væri 16 ár þar sem íbúar hefja greiðslu skatta við þann aldur. Þannig væri íslenskum skattgreiðendum ekki mismunað eftir aldri.
-
Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ hefur alltaf lagt mikla áherslu á að styðja með markvissum hætti við öflugt íþrótta- og tómstundastarf í bænum. Meginstefna Sjálfstæðisflokksins hefur verið tvíþætt, annars vegar að fjárfesta í aðstöðu í fremsta flokki og hins vegar að byggja upp öflugt samstarf við frjálsu félögin í bænum sem halda úti fjölbreyttu starfi.
Við viljum halda áfram á þeirri braut og leggja enn meiri áherslu á aðgengi fyrir alla að íþrótta- og tómstundastarfi, efla forvarnir og styðja við fjölbreytt framboð. Jafnframt viljum við tryggja að uppbygging aðstöðu haldist í takt við vöxt bæjarins og að samstarfið við félögin verði áfram öflugt.
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ hafa í gegnum tíðina verið öflugir málsvarar og stuðningsaðilar Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Þannig hefur bæjarfélagið tekið þátt í uppbyggingu á skólanum og á hlut í húsnæði skólans. Auk þess hefur Garðabær styrkt verkefni í skólanum t.a.m. tengt listgreinum.
-
Undir forystu Sjálfstæðisflokksins hefur Garðabær verið í fararbroddi í umhverfismálum undanfarin ár með skýra áherslu á vernd náttúru og góðan aðgang íbúa að grænum svæðum. Um fjórðungur bæjarlandsins er friðlýstur og markvisst er unnið að því að varðveita þau verðmæti til framtíðar. Í uppbyggingu nýrra hverfa höfum við lagt áhersla á fallegt og grænt yfirbragð ásamt góða göngu- og hjólastíga í öllum bænum.
-
Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að þeir sem flytja í sveitarfélagið fái tækifæri til að aðlagast samfélaginu. Móttaka nýrra íbúa, þar á meðal flóttafólks, hefur verið markviss með það að markmiði að auðvelda aðlögun og tryggja að börn og fjölskyldur fái þann stuðning sem þarf. Sérstakir tengiliðir á bæjarskrifstofunum aðstoða nýja íbúa við að fóta sig í samfélaginu.
Þá hefur Garðabær verið í samstarfi við Samtökin ‘78 um hinsegin fræðslu sem nær til skólasamfélagsins alls og starfsfólks bæjarins.
-
Við styðjum markmið samningsins en leggjum áherslu á mikilvægi þess að fjármagn fylgi í málaflokkinn. Undir forystu Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ hefur á undanförnum árum verið stigin stór skref í að efla þjónustu við fatlað fólk, m.a. með uppbyggingu búsetukjarna, auknum tækifærum til sjálfstæðrar búsetu og öflugum stuðningi við þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi. Ánægja notenda með þjónustuna er almennt mikil og við munum halda áfram að byggja ofan á þann árangur.
Þess má einnig geta að unnið er að koma upp frístundamiðstöð fyrir fötluð ungmenni sem verður tekin í notkun síðar á þessu ári.
-
Undir forystu Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ hefur um langt árabil hefur verið lögð mikil áhersla á stoðþjónustu í leik- og grunnskólum en þar starfar öflugt teymi sálfræðinga, þroskaþjálfa, atferlisfræðingar ásamt öðrum fagmenntuðum aðilum til að grípa þau börn sem þurfa stuðning. Þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn lengi barist fyrir því að auka aðgengi íbúa að heilsugæslu í bænum. Hluti af vandanum í geðheilbrigðismálum er aðgengi að sálfræðiþjónustu en þar hefur heilsugæslan bætt í síðustu ár ásamt því boðið hefur verið upp á sálfræðiviðtöl í unglingadeildum skólanna. Með nýrri heilsugæslustöð í Garðabæ, sem nú hillir undir, má vænta þess að aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu í Garðabæ muni aukist.
-
Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ vill raunhæfar lausnir, ekki loforð án innihalds. Garðabær er aðili að samgöngusáttmálanum og styður þær aðgerðir sem þar eru lagðar til. Samgönguvandinn leysist ekki með einni aðgerð heldur samspili almenningssamgangna, einkabíls og virkra ferðamáta. Við leggjum áherslu á öruggar og skilvirkar leiðir innanbæjar og við ætlum að halda áfram markvissri uppbyggingu hjóla- og göngustíga sem nýtast íbúum í daglegu lífi.
Garðabæjarlistinn
Listabókstafur: X-G
Oddviti: Þorbjörg Þorvaldsdóttir
Staða: Í minnihluta
Fjöldi bæjarfulltrúa: 2
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
Miðflokkurinn
Listabókstafur: X-M
Oddviti: Lárus Þór Guðmundsson
Staða: Utan bæjarstjórnar
Fjöldi bæjarfulltrúa: 0
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
Samfylkingin
Listabókstafur: X-S
Oddviti: Kjartan Atli Kjartansson
Staða: Nýtt framboð
Fjöldi bæjarfulltrúa: N/A
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description