Akureyri er stærsta sveitarfélagið á landsbyggðinni og þjónustumiðstöð Norðurlands. Atvinnulíf er fjölbreytt og byggir á sjávarútvegi, iðnaði, menntun og ferðaþjónustu. Sem háskólabær leggur Akureyri áherslu á menningu og nýsköpun. Í skuggakosningum eru málefni á borð við almenningssamgöngur, umhverfismál og framtíðaratvinnutækifæri fyrir ungt fólk gjarnan í brennidepli. Bærinn leggur metnað í að vera leiðandi í sjálfbærni og lífsgæðum íbúa sinna.
Íbúafjöldi: 20.284 manns
Á kjörskrá: 563 nemendur
Kjörstaðir skuggakosninga:
Menntaskólinn á Akureyri
Verkmenntaskólinn á Akureyri
-
Þessar kosningar snúast um velja hverjir fá að ráða. Líkt og allar aðrar kosningar hingað til. Það heldur mikil einföldun að fullyrða að kosningar snúist um eitthvað ákveðið mál en við munum leggja áherslu á að byggja miklu meira þannig að þau sem eiga ekki fasteign geti átt möguleika á að eignast einhvern tímann fasteign.
-
Við ætlum að auka námsframboð í bænum til að minnka þörfina á að flytja úr bænum til að sækja sér menntun og fjölga atvinnutækifærum þannig að fólk sem fer annað til að mennta sig eigi kost á að flytja aftur heim. Svo ætlum við að tryggja að það séu íbúðir í boði sem ungt fólk á efni á að kaupa í bænum.
-
Það mætti klárlega skoða það. Það eru bæði vel upplýstir og illa upplýstir kjósendur í öllum aldursflokkum svo það er engin sérstök ástæða til að koma í veg fyrir að ungt fólk hafi áhrif á hverjir eru valdir til að stjórna.
-
Margt. Við viljum gera nýjan golfvöll, klára KA svæðið, byggja nýtt íþróttahús á Þórs svæðinu, setja nýja stólalyftu í Hlíðarfjall, hanna nýja 50 metra keppnissundlaug, styðja Bílaklúbbinn, halda tónlistarviðburði yfir sumartímann og efla Rósenborg sem miðsktöð skapandi greina á Akureyri. Ásamt því að stórefla menntun og námskeið í skapandi greinum og listgreinum eins og tónlist, myndlist, leiklist, ljósmyndun og kvikmyndagerð.
-
Fyrst með því að tala gegn því að ríkið sameini þá. Svo með því að hvetja ríkið til þess að drífa sig af stað að stækka VMA.
Eins og í fyrri punkti þá viljum auka námsframboð í skapandi greinum og listgreinum og passa að þau sem sæki um í tækninám fái inngöngu því það er mikill skortur á því fólki til starfa í atvinnulífinu. -
Við viljum efla uppbyggingu göngu og hjólastíga.
Við viljum byggja líforkuver til að brenna sorp og hræ í Eyjafirði svo það þurfi ekki að brjóta Evrópureglur með því að grafa hræin eða sigla með sorpið til Svíþjóðar til að brenna það. -
Öll mega vera eins og þau vilja og elska þau sem þau vilja.
Við eigum að taka vel á móti öllum sem hafa fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn sem eru tilbúin að undirgangast okkar samfélagssáttmála um mannréttindi kvenna og hinsegin fólks sem dæmi og aðstoða þau við að aðlagast samfélaginu. -
Óska eftir því við ríkið að fjármagn fylgi þeirra ákvörðunum svo við getum þjónustað fatlað fólk þannig að sómi sé af.
-
Auka aðgengi að sálfræðiþjónustu, sérstaklega hjá ungu fólki.
Draga úr félagslegri einangrun. Sérstaklega hjá eldra fólki. -
Við viljum stórefla Akureyrarflugvöll sem aðra gátt inn í landið. Það eflir atvinnulífið, ferðaþjónustuna og bætir lífsgæði.
Við viljum stytta leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur.
Við viljum fjölga göngu- og hjólastígum.
Framsóknarflokkurinn
Listabókstafur: X-B
Oddviti: Sunna Hlín Jóhannesdóttir
Staða: Í minnihluta
Fjöldi bæjarfulltrúa: 2
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
Viðreisn
Listabókstafur: X-C
Oddviti: Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir
Staða: Nýtt framboð
Fjöldi bæjarfulltrúa: N/A
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
Sjálfstæðisflokkurinn
Listabókstafur: X-D
Oddviti: Berglind Ósk Guðmundsdóttir
Staða: Í meirihluta
Fjöldi bæjarfulltrúa: 2
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
L-Listinn
Listabókstafur: X-L
Oddviti: Óðinn Svan Óðinsson
Staða: Í meirihluta
Fjöldi bæjarfulltrúa: 3
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
Miðflokkurinn
Listabókstafur: X-M
Oddviti: Hlynur Jóhannsson
Staða: Í meirihluta
Fjöldi bæjarfulltrúa: 1
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Bæjarstjórnarkosningar á Akureyri 2026 munu snúast um framtíðina. Akureyri þarf að fara ákveða hvað hún ætlar að verða þegar hún verður stór. Og ekki stór í skilningi þess að hér eigi að rísa stórborg, heldur hvernig bærinn ætlar að vaxa og dafna inn í framtíðina. Hvernig við tryggjum að ungt fólk vilji búa hérna áfram eftir að námi lýkur. Þar leika atvinnumálin risastórt hlutverk og eitt helsta stefnumál Samfylkingarinnar á Akureyri er að móta sérstakt atvinnu- og vaxtaplan fyrir bæinn. Þannig tökum við stjórn á hvert við stefnum og byggjum skemmtilegan bæ fyrir öll!
-
Við viljum byggja skemmtilegan bæ þar sem allir geta fundið vinnu eða annað lífsviðurværi við hæfi. Það gerist ekki nema að við tökum ákvörðun um hvernig bærinn eigi að þróast til framtíðar: Við verðum að bæta aðstöður fyrir ungt fólk í bænum og efla samgöngukerfið fyrir þægilegri ferðamáta um bæinn og meira sjálfstæði einstaklingsins og þar erum við í Samfylkingunni á Akureyri svo sannarlega tilbúin til verka.
-
Samfylkingin á Akureyri er afar jákvæð fyrir lækkun kosningaaldurs, sérstaklega á sveitastjórnarstiginu. Í sveitarfélögunum ákveðum við hvernig nærumhverfið okkar er og virkar og þar eiga raddir ungs fólks, yngri en 18 ára, svo sannarlega fullt erindi.
-
Við viljum efla enn frekar styrki til barna og ungmenna til þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi. En við viljum jafnframt vinna að því með skýrum aðgerðum að ná hópum inn í skipulagt íþrótta- og tómstundastarf sem taka síður þátt í dag. Þar erum við að horfa til barna og ungmenna sem koma frá tekjulægri heimilum, barna og ungmenna af erlendum uppruna og síðasta en ekki síðast fatlaðra barna og ungmenna. Þess fyrir utan ætlum við að halda áfram því kröftuga uppbyggingarstarfi íþróttamannvirkja sem hefur staðið yfir á Akureyri.
-
Fyrst og fremst með því að tala máli þeirra gagnvart yfirvöldum í Reykjavík. Það er þrengt að starfsemi skólanna, of litlu fé veitt til þeirra, heimavist MA og VMA er yfir sig full og skerðir það að aðsókn í skólanna. Þegar kemur að iðnnámi, þar sem nemendur eru að hluta til komin á þrítugsaldur og/eða komin með börn og geta/vilja þá ekki búa á vistinni, verður eitthvað að gerast í uppbyggingu svo að frábæra námið sem hér er boðið upp á geti sinnt sínu. Samfylkingin á Akureyri mun ávallt standa með MA og VMA.
-
Stóra umhverfismálið okkar er að efla almenningssamgöngur á Akureyri. Við ætlum að gera strætó að raunverulegum valkosti fyrir unga sem aldna í að ferðast um bæinn með nýju leiðakerfi og tíðari ferðum strætisvagna.
-
Samfylkingin á Akureyri tilheyrir eins og Samfylkingin á Íslandi hreyfingu jafnaðarflokka á heimsvísu. Við lítum á inngildingu sem mikilvægt verkefni og ekki bara yfirlýsingu eða afstöðu. Við viljum tryggja jafnt aðgengi að þjónustu, upplýsingaflæði, styrkja stuðning við börn með mismunandi bakgrunn og hinseginn ungmenni í skólumm og vinna markvisst gegn fordómum og hatursorðræðu. Samfylkingin á Akureyri vill að sveitarfélagið verði fyrirmynd á landsvísu þegar kemur að jafnrétti og þjónustu við íbúa sveitarfélagsins.
-
Við munum innleiða samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks af fullum krafti og tryggja að hann verði leiðarljós í stefnumótun og þjónustu bæjarins. Það felur í sér að efla aðgengi, jafna þátttöku og tryggja að réttindi fatlaðs fólks séu virt í daglegum rekstri, ákvarðanatöku og þróun samfélagsins. Við munum jafnframt fylgja eftir markvissum aðgerðum og reglulegu mati til að tryggja raunverulegan árangur.
-
Við ætlum okkur að grípa börn og ungmenni miklu fyrr. Þetta munum við gera með því að fjölga sérfræðingum (sálfræðingum, talmeinafræðingum o.s.frv.) inn í skólakerfinu og gera kennurum kleift að einbeita sér að kennslustarfinu.
-
Við höfum einsett okkur að gera strætó á Akureyri almennilegan og raunverulegan kost fyrir alla bæjarbúa, unga sem aldna, með nýju leiðakerfi og aukinni tíðni ferða. Þannig drögum við úr umferð og gerum þeim sem vilja frekar nota einkabílinn enn betur kleift að koma leiða sinna innan bæjarins. Við viljum einnig setja aukin kraft í umferðaröryggismál í bænum þannig að öll upplifi sig örugg í umferðinni, sama hvað samgöngumáta þau kjósa.
Vinstri Grænir
Listabókstafur: X-V
Oddviti: Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir
Staða: Í minnihluta
Fjöldi bæjarfulltrúa: 1
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description
-
Item description