Fjarðabyggð er fjölmennt sveitarfélag á Austfjörðum með mörgum byggðakjörnum þar sem iðnaður og útgerð vega þyngst. Samfélagið er eitt af efnahagslegum vélum landsins vegna álversins og öflugra sjávarútvegsfyrirtækja. Áherslur í stjórnsýslu lúta að samgöngum milli fjarða, atvinnumálum og íþróttastarfi. Fyrir unga kjósendur eru tækifæri í tæknigreinum og iðnaði áberandi, ásamt mikilvægi þess að viðhalda öflugri þjónustu í öllum kjörnum sveitarfélagsins.

Íbúafjöldi: 5.228 manns

Á kjörskrá: 250 nemendur

Kjörstaðir skuggakosninga:

Verkmenntaskóli Austurlands

M - Miðflokkurinn
S - Samfylkingin
B - Framsókn
D - Sjálfstæðisflokkurinn

FramsóknARFLOKKURINN

Listabókstafur: X-B

Oddviti: Þuríður Lillý Sigurðardóttir

Staða: Í meirihluta

Fjöldi bæjarfulltrúa: 3

  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description

Sjálfstæðisflokkurinn

Listabókstafur: X-D

Oddviti: Ragnar Sigurðsson

Staða: Í meirihluta

Fjöldi bæjarfulltrúa: 4

  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description

Miðflokkurinn

Listabókstafur: X-M

Oddviti: Hrafn Bjarnason

Staða: Nýtt framboð

Fjöldi bæjarfulltrúa: N/A

  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description
  • Item description

Samfylkingin og annað félagshyggjufólk

Listabókstafur: X-S

Oddviti: Stefán Þór Eysteinsson

Staða: Nýtt framboð

Fjöldi bæjarfulltrúa: N/A

  • Kosningarnar snúast um daglegt líf fólks í Fjarðabyggð. Það er svo mikilvægt að grunnþjónustan virki fyrir íbúa þar sem áhersla er lögð á leik- og grunnskóla, að samgöngur gangi upp og að fólk þurfi ekki að berjast við kerfið til að láta daglegt líf ganga upp. Þær snúast líka um að íbúar okkar upplifi að þeir hafi rödd og að á þá sé hlustað. Með því að einfalda daglegt líf fólks og hlusta á það getum við byrjað að byggja upp traust og tengsl á milli íbúa og þjónustu sveitarfélagsins.

  • Til að halda unga fólkinu okkar í sveitarfélaginu þurfum við að skapa aðstæður þar sem það sér raunverulega framtíð í Fjarðabyggð. Það gerum við með því að skapa vettvang þar sem við eflum þátttöku ungs fólks í samfélaginu og tengjum það betur við það sem sveitarfélagið hefur uppá að bjóða þegar það kemur að menntun, atvinnu og menningu. Að sama skapi þurfum við að halda áfram að tryggja að hér sé húsnæði við hæfi fyrir ungt fólk til að byrja að búa og við þurfum að efla frístundastarf í sveitarfélaginu. Einnig þurfum við að bæta samgöngur svo auðveldara sé að sækja nám, vinnu og tómstundir. Í grunninn þá snýst þetta um að skapa samfélags þar sem rödd ungs fólks skiptir máli og það viljum við gera.

  • Við erum jákvæð gagnvart lækkun kosningaaldurs. Við teljum mikilvægt að ungt fólk fái aukið vægi í lýðræðinu og raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á sitt nærumhverfi því mikið af þeim ákvörðunum sem eru teknar í dag munu hafa áhrif á líf ungs fólks um ókomna tíð.

  • Við viljum tryggja að öll börn og ungmenni hafi raunverulega aðgang að íþróttum og tómstundum, óháð búsetu. Það felur í sér að  halda frístundastyrk í takt við gjöld íþróttafélaga, styðja við fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf í öllum byggðakjörnum og bæta samgöngur svo öll geti tekið þátt óháð búsetu.

  • Við viljum styrkja framhaldsskólana á svæðinu með aukinni samvinnu milli grunnskóla og framhaldsskóla, betri tengingum við atvinnulíf og sveitarfélagið og skýrri sýn á húsnæðismál skólanna. Heimavist og aðstaða þurfa að vera raunhæfur og góður kostur fyrir þau ungmenni sem þurfa að sækja nám milli byggðarkjarna eða af nærliggjandi svæðum.

  • Við viljum byggja upp samfélag þar sem náttúran nýtur vafans og sjálfbærni er leiðarljós í ákvörðunum sem eru teknar um uppbyggingu í sveitarfélaginu. Einnig er mikilvægt að uppfæra og fylgja eftir umhverfis- og loftslagsstefnu sveitarfélagsins í samráði við íbúa. Við viljum líka efla vernd og aðgengi að útivistarsvæðum. 

  • Við viljum byggja samfélag þar sem öll upplifa sig velkomin og geti tekið þátt. Efla þarf góða og samræmda móttöku nýrra íbúa, bæta aðgengi að upplýsingum fyrir öll, styðja við íslenskunám, m.a. á vinnutíma, berjast gegn fordómum og mismunum og stuðla að fjölbreytileiki endurspeglist í ráðningum innan sveitarfélagsins. Einnig munum við halda áfram samstarfi við samtökin 78.

  • Við styðjum innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og viljum tryggja að hann verði raunverulega innleiddur í þjónustu sveitarfélagsins  með auknu aðgengi, samráði og notendamiðaðri þjónustu. 

  • Halda áfram að efla og styðja við geðræktarmiðstöð sem er starfrækt í sveitarfélaginu, efla forvarnir og snemmtæka íhlutun sem og samhæfa þjónustu fyrir börn og fjölskyldur. Við þurfum líka að halda áfram að þrýsta á stjórnvöld að efla þau úrræði sem eru í boði út á landi. 

  • Við viljum bæta almenningssamgöngur þannig að þær virki í daglegu lífi íbúa með skýrara leiðarkerfi, betri upplýsingagjöf og aðstöðu eins og strætóskýlum. Einnig viljum við byggja upp örugga göngu- og hjólastíga milli svæða.

Previous
Previous

Borgarbyggð

Next
Next

Garðabær